Flokka.is - Borgarteigur 12 - 550, Sauđárkrókur
Bylgjupappi
Allur bylgjupappi,t.d.pappakassar,pitsukassar, þvottaduftspakkar
Bylgjupappa er hægt að þekkja af bylgjum sem sjást ef brúnir hans eru skoðaðar. Það er í lagi að bylgjupappinn sé áprentaður, plasthúðaður og litsterkur.
 
Sléttur pappi
Þetta eru umbúðir utan af morgunkorni, eggjabakkar, eldhús- og salernishólkar, kexpakkar.
Mikilvægt er að fjarlægja allar matarleifar og plastumbúðir sem kunna að vera inni í umbúðum.
 
Fernur
Fernur er nauðsynlegt að skola til að forðast lyktarmengun og brjóta svo allar umbúðir saman svo þær taki minna pláss.
 
Litað plast
Litað og áprentað plast, t.d. utan af kók-kippum, innkaupapokar
 
Glært plast
Allt plast sem er glært, t.d. innan úr morgunkornspökkum, utan af kexi
 
Blöð
Dagblöð, tímarit, allskonar auglýsingapésar, umslög, skrifstofupappír
Það er í lagi þó það séu hefti í pappírnum
Flokka ehf • Borgarteigur 12 • 550 Sauđárkrókur • Sími: 453-5000 • Fax: 453 5010 • flokka[hjá]flokka.is
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is